Elsku gyðjur!
Til hamingju með daginn!!! 19 júni er okkar dagur. Gamla er komin í bleikt og ætlar að halda daginn hátíðlegan. Búin að gera tilraunir að koma nýja sambýlis manni mínum í bleikt, ekki tekist ennþá, en gefst ekki upp ;)
Kæru konur upphefjum gyðjunna í okkur og deilum því. Við erum svo frábærar og snjallar að það er sind ef þið haldið aftur af ykkur og deilið því ekki með umheiminum. Hvað er fallegra en kona sem er sátt og nýtur lífsins? Lífið er of stutt fyrir neikvæða strauma. Tilbyðjum og elskum gyjunna innra með okkur. Fyrst og fremst elskið og hlúið að ykkur, annað verður bara bónus í framhaldi af því. Hugsið ykkur fullnæginguna sem fellst í því!! Þessi dagur á að minna okkur á hversu miklu við höfum náð fram í þessu karllæga samfélagi, hann ætti einnig að minna okkur á að sigrinum ætti ekki að fagna einu sinni á ári heldur á hverjum degi.
Brilljant lýsing á því hvernig konur litu á sig og sín hlutverk las ég í grein fyrir skemmstu.. þetta ætti að vekja okkur til umhugsunnar um þá breytingu sem átt hefur sér stað í viðhofum okkar : “ Til skamms tíma hafa konur átt í erfiðleikum með að þetta (monta sig/vera stoltur af sér) en karlar. Við fengum einfaldlega þau skylaboð í uppeldinnu, kynslóð eftir kynslóð, að það væri ljótt að monta sig. Miklu betra væri að gera sem minnst úr eigin verðleikum. Við áttum að vera eins og myndalega húsmóðirin sem spurð var hver hefði eldað þennan gómsæta mat. Hún svaraði af þessu dæmigerða, kvenlega litillæti sem áður þótti mikill kostur : “ Það var nú bara ég – ef mig skyldi kalla.” “

0 Comments:
Post a Comment
<< Home